Fjáraukalög 1995

Fimmtudaginn 21. desember 1995, kl. 21:33:20 (2416)

1995-12-21 21:33:20# 120. lþ. 76.5 fundur 44. mál: #A fjáraukalög 1995# frv., heilbrrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 76. fundur


[21:33]

Heilbrigðisráðherra (Ingibjörg Pálmadóttir) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég taldi mig skýra þetta út fyrir hv. þm. áðan og það er engu við það að bæta á þessari stundu. Hann þekkir þessi ferliverk jafn vel og sú er hér stendur. Í undantekningartilvikum leggst sjúklingur inn og það er í þeim tilvikum sem þetta getur verið á gráu svæði og um það er ekkert meira að segja á þessari stundu.