[22:06]
Sturla Böðvarsson (andsvar):
Virðulegi forseti. Hv. þm. Guðmundur Árni Stefánsson gerði að umtalsefni það minnisblað sem rætt hefur verið nokkuð um en það er afrakstur tilrauna okkar formanns og varaformanns fjárln. til þess að hafa áhrif á það að samkomulag næðist á Suðurnesjum um endurskoðun á samningum milli ríkisins og sveitarfélaganna þar vegna Sjúkrahúss Suðurnesja. Mér fannst óþarfi hjá hv. þm. að reyna að gera þessa tilraun sem varð að minnisblaði tortryggilega, en það er ástæða til þess að gera nokkra grein fyrir því þó að til þess gefist ekki mjög langur tími í andsvari. Engu að síður er nauðsynlegt að gera nokkra grein fyrir þessu.
Í fyrsta lagi vil ég segja að vandi Sjúkrahússins á Suðurnesjum var og er mikill. Það liggur jafnframt fyrir auk þess sem vandinn er mikill að ekki hefur verið gerð tillaga eða fundin lausn á því með hvaða hætti eigi að styrkja rekstur þessarar mikilvægu heilbrigðisstofnunar. Hins vegar er til umræðu í fjáraukalögum og verður við 3. umr. fjárlaga gerð grein fyrir með hvaða hætti meiri hluti fjárln. leggur til að lausn finnist á vanda þessa sjúkrahúss. Hún felst í fyrsta lagi, sem er afar mikilvægt, í því að reyna að leysa bæði vanda heilsugæslunnar og sjúkrahússins. Þess vegna er í fjáraukalagafrv. gerð tillaga um 35 millj. í rekstur heilsugæslustöðvarinnar auk þess sem 75 millj. kr. pottur er ætlaður til þess að leysa vanda nokkurra sjúkrahúsa og þar á meðal Sjúkrahúss Suðurnesja. Þetta er afar mikilvæg aðgerð en hún tengist því að samkomulag finnist milli heimamanna og heilbrrn. um með hvaða hætti eigi að standa að endurskipulagi á rekstri þessarar stofnunar. Þetta vildi ég segja í fyrsta lagi. (Gripið fram í: ... heimamenn, þá fá þeir ekki neitt.) Heimamenn fá náttúrlega það sem við samþykkjum á Alþingi, hv. þm. Að sjálfsögðu treystum við því og við gerum ráð fyrir að það samkomulag sem undirritað hefur verið og undirritað verður, standi. Ég hef enga ástæðu til þess að ætla annað en bærilegt samkomulag náist um það.
Hæstv. forseti. Ég verð í seinni hluta andsvarsins að fá tækifæri til þess að koma inn á aðra hluti.