[23:55]
Ólafur Ragnar Grímsson (andsvar):
Virðulegi forseti. Það var athyglisvert að hv. þm. svaraði ekki mikilvægustu spurningunni sem ég bar fram við hann. Hún var sú hvort hann hefði virkilega verið að lýsa því yfir fyrr í kvöld að ef Sjúkrahús Suðurnesja sætti sig ekki við skipulagsbreytingar sem heilbrrn. legði til þá fengi það ekkert úr þeim 70 millj. kr. sjóði sem ætti að verja til að leysa fjárhagsvandann. Það er nefnilega þannig, hv. þm., að engin niðurstaða hefur fengist í málinu. Það rangt hjá hv. þm. að segja að niðurstaða hafi fengist. Allir vita að af hálfu sveitarstjórnarmanna á Suðurnesjum og þingmanna Reykjaneskjördæmis er engin niðurstaða komin í málið. Það eina sem gerst hefur er að undirritað hefur verið minnisblað og eftir á að útfæra það og túlka með samningum. Engin niðurstaða fæst fyrr en þeim er lokið. Af hálfu heimamanna er ljóst, eins og fram hefur komið á formlegum fundum með okkur, að með minnisblaðinu er búið að tengja saman, hv. þm., lausnina á fjárhagsvanda Sjúkrahúss Suðurnesja og heilsugæslustöðvarinnar og byggingarmálin. Það sem hefur verið að upplýsast í kvöld er að lausnin á fjárhagsvandanum er fullkomlega í lausu lofti. Þess vegna er það þannig, hv. þm., að það er engin niðurstaða fengin. Það er misskilningur hjá hv. þm. að einhver pólitískur pirringur sé í þessu máli af minni hálfu. Satt að segja hefur sú siðvenja orðið mjög rík hjá okkur þingmönnum Reykn. að við stöndum saman að hagsmunamálum kjördæmisins og erum ekki með flokkspólitíska leikfimi um það. Það kom skýrt fram á fundi þingmanna kjördæmisins með sveitarstjórnarmönnum á Suðurnesjum að í þessu máli var um að ræða eindregna samstöðu þingmanna kjördæmisins og við vitum fullvel að ekki hefur fengist niðurstaða í málinu. Þess vegna tökum við það til umfjöllunar. Við erum að reyna að skýra málið til þess að reyna að ná þessari niðurstöðu fram.