[11:38]
Tómas Ingi Olrich:
Virðulegi forseti. Ítrekaður rekstrarhalli Ríkisspítalanna er vandamál sem ekki er tekið á með aukafjárveitingunni sem hér er lögð til. Árlegar aukafjárveitingar til stofnana sem ekki fara að fjárlögum og flatur niðurskurður heilbrigðisstofnana skapa óviðunandi agaleysi í ríkisrekstrinum og þeim sem fara að lögunum er mismunað. Stuðningur minn við tillöguna er því skilyrtur. Ég ætlast til þess að það svigrúm sem fjárveitingin skapar verði nýtt til þess að finna viðunandi lausn á rekstrarvanda en ekki síst stjórnunarvanda Ríkisspítalanna. Ég segi já. (ÖS: Ef það verður ekki gert hvað ætlar hv. þm. þá að gera?) Þá styður hann ekki svipaða tillögu næsta ár.