[11:41]
Guðmundur Árni Stefánsson:
Virðulegi forseti. Með þessari tillögu er gengið þvert á gildandi samkomulag um byggingu D-álmu við Sjúkrahús Suðurnesja og títtnefnt minnisblað sem gengur í aðrar áttir hefur á þessu stigi málsins ekkert formlegt gildi. Þessi gjörningur er að mínu mati ólög og á engan hátt sæmandi Alþingi að ganga þannig frá málum. Því segi ég nei.