Þingfrestun

Föstudaginn 22. desember 1995, kl. 13:40:09 (2522)

1995-12-22 13:40:09# 120. lþ. 78.96 fundur 165#B þingfrestun#, forsrh.
[prenta uppsett í dálka] 78. fundur


[13:40]

Forsætisráðherra (Davíð Oddsson):

,,Forseti Íslands gjörir kunnugt: Að ég, að tilskildu samþykki Alþingis, veiti forsætisráðherra umboð til þess að fresta fundum Alþingis, 120. löggjafarþings, frá 22. desember 1995 og standi sú frestun til 30. janúar 1996.

Gjört að Bessastöðum, 22. desember 1995.

Vigdís Finnbogadóttir.

---------------------

Davíð Oddsson.

Forsetabréf um frestun á fundum Alþingis.``

Samkvæmt þessu umboði og með tilvísun til samþykkis Alþingis lýsi ég hér með yfir því að fundum Alþingis, 120. löggjafarþings er frestað.

Leyfi ég mér að óska hv. alþingismönnum og starfsmönnum þingsins, svo og landsmönnum öllum, gleðilegra jóla og farsæls nýárs.