[prenta uppsett í dálka] 161. fundurHjörleifur Guttormsson:
Virðulegur forseti. Hér er verið að heimila gjaldtöku fyrir aðgang að
landi. Tillagan felur í sér að rekstraraðila náttúruverndarsvæðis, sem
getur verið einkaaðili eða sveitarfélag eða hvaða lögaðili sem er,
er veitt heimild til þess að taka gjald fyrir aðgang að
landinu. Ekki veitta þjónustu, um það er fjallað í fyrri mgr. heldur
fyrir aðgang að landinu. Það er það sem verið er hér að innleiða. Þetta
er fráleit stefna að opna fyrir slíkt, hvað þá að ætla einstökum
rekstraraðilum að ákveða upphæð gjaldtöku. Þetta er auk þess ópraktískt
og auk lítt framkvæmanlegt. Það bjargar nú kannski málinu að einhverju
leyti.