Ferill 136. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1995. – 1065 ár frá stofnun Alþingis.
120. löggjafarþing. – 136 . mál.
325. Breytingartillögur
við frv. til l. um breyt. á l. nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda, með síðari breytingum.
Frá efnahags- og viðskiptanefnd.
Eftirfarandi breytingar verða á 18. gr. laganna:
Við endurgreiðslu skv. 1. og 2. mgr. skal bæta álagi sem skal vera 0,2% af endurgreiðslufjárhæð fyrir hvern byrjaðan mánuð frá því staðgreiðsla var innt af hendi og þar til endurgreiðsla fer fram.
Í stað orðsins „verðbóta“ í 1. málsl. 1. mgr. 38. gr. laganna kemur: álags.