Ferill 44. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1995. – 1065 ár frá stofnun Alþingis.
120. löggjafarþing. – 44 . mál.


450. Framhaldsnefndarálit


um frv. til fjáraukalaga fyrir árið 1995.

Frá meiri hluta fjárlaganefndar.


    Við 2. umræðu um frumvarpið gerði nefndin og meiri hluti hennar 11 breytingartillögur við frumvarpið sem voru samþykktar við þá umræðu. Í ræðu formanns þá kom fram að fjallað hefði verið um nokkur mál til viðbótar í nefndinni en að ákvörðun um þau hefði verið frestað til 3. umræðu. Að auki hafa komið fram nokkur ný útgjaldatilefni síðar. Umfjöllun um þau mál er nú lokið í nefndinni og leggur meiri hluti hennar til að frumvarpið verði samþykkt með þeim 20 breytingum sem gerðar eru tillögur um á þskj. 451, en þær nema alls 522,9 m.kr. Einstakar breytingartillögur eru skýrðar í athugasemdum með álitinu, auk þess sem fjallað verður um þær í framsögu. Í eftirfarandi töflu er yfirlit yfir fjárheimildir ráðuneyta árið 1995 og þær breytingar sem meiri hluti nefndarinnar hefur gert tillögur um við 2. og 3. umræðu frumvarpsins.

Fjárheimildir ráðuneyta 1995.


Fjárlög

Frv. til fjár-

Breytingar-

Alls nýjar

Yfirfærðar

Heimildir

1995

aukalaga

tillögur

heimildir

heimildir

ársins

Greiðslugrunnur

m.kr.

m.kr.

m.kr.

m.kr.

m.kr.

m.kr.


00 Æðsta stjórn      1.276
,7 58 ,0 31 ,4 1.366 ,1 14 ,6
1.380 ,7
01 Forsætisráðuneyti      523
,8 19 ,0
- 542 ,8 299 ,8 842 ,6
02 Menntamálaráðuneyti      16.943
,6 103 ,3 25 ,0 17.071 ,9 163 ,9
17.235 ,8
03 Utanríkisráðuneyti      1.787
,5 114 ,4 29 ,7 1.931 ,6 70 ,0
2.001 ,6
04 Landbúnaðarráðuneyti      6.912
,9 21 ,0 156 ,0 7.089 ,9 7 ,1
7.097 ,0
05 Sjávarútvegsráðuneyti      1.110
,9 14 ,7 2 ,5 1.128 ,1 42 ,2
1.170 ,3
06 Dóms- og kirkjumálaráðuneyti      5.744
,0 35 ,0 1 ,7 5.780 ,7 310 ,2
6.090 ,9
07 Félagsmálaráðuneyti      9.328
,6 223 ,8 28 ,8 9.581 ,2 195 ,7
9.776 ,9
08 Heilbr.- og tryggingamálaráðuneyti      46.227
,9 2.334 ,6 346 ,6 48.909 ,1 85 ,4
48.994 ,5
09 Fjármálaráðuneyti      18.348
,9 188 ,3 285 ,0 18.822 ,2 299 ,4
19.121 ,6
10 Samgönguráðuneyti      9.182
,8 230 ,0 36 ,0 9.448 ,8 29 ,6
9.478 ,4
11 Iðnaðarráðuneyti      1.090
,7 40 ,3 5 ,0 1.136 ,0 24 ,4
1.160 ,4
12 Viðskiptaráðuneyti      173
,3 14 ,1
- 187 ,4 5 ,5 192 ,9
13  Hagstofa Íslands      148
,6
- - 148 ,6 0 ,8 149 ,4
14  Umhverfisráðuneyti      728
,1 2 ,5
- 730 ,6 13 ,9 744 ,5
Samtals      119.528
,3 3.399 ,0 947 ,7 123.875 ,0 1.562 ,5
125.437 ,5






SKÝRINGAR VIÐ EINSTAKAR BREYTINGARTILLÖGUR


01 Menntamálaráðuneyti

209    Verkfræðistofnun Háskóla Íslands. Leitað er eftir heimild fyrir 7 m.kr. viðbótarframlagi. Undanfarin ár hefur myndast halli á rekstri stofnunarinnar sem að stærstum hluta stafar af því að nokkur tími líður frá því verkefni eru framkvæmd og þar til greitt er fyrir þau. Framlaginu er hins vegar ætlað að mæta þeim hluta hallans sem á rætur að rekja til þess að fjáröflun eins verkefnis brást óvænt og til þess að greiða kostnað við mál sem leggja þurfti í og tengjast verndun einkaleyfisréttar.

983    Ýmis fræðistörf. Í tilefni af 1100 ára afmæli Íslandsbyggðar árið 1974 var ákveðið að ráðast í útgáfu á Sögu Íslands og annaðist Hið íslenska bókmenntafélag ritstjórn og útgáfu verksins. Gert var samkomulag um að umsjónarkostnaðurinn yrði greiddur úr ríkissjóði en að hann yrði síðan endurgreiddur með hlutdeild í söluandvirði útgefinna rita. Gerð er tillaga um 6 m.kr. aukafjárveitingu þar sem tekjur af sölu ritanna hafa ekki orðið þær sem vænst var.

989    Ýmis íþróttamál. Farið er fram á 5 m.kr. viðbótarheimild vegna fjárhagserfiðleika Handknattleikssambands Íslands í kjölfar heimsmeistaramótsins í handknattleik sem haldið var hér á landi síðastliðið sumar.

04 Landbúnaðarráðuneyti

811    Búnaðarfélag Íslands. Á árinu 1992 var lögum breytt á þann veg að greiðsluskylda framlaga samkvæmt jarðræktarlögum myndast ekki lengur sjálfkrafa heldur er hún háð fjárveitingu Alþingis. Í fjáraukalögum ársins 1994 var þó veitt sérstakt framlag til bygginga áburðarhúsa og vatnsveitna á árunum 1992 og 1993 þar sem þær jarðarbætur voru að stórum hluta tilkomnar vegna stjórnvaldsákvæða um hreinlæti við mjólkurframleiðslu. Gerð er tillaga um 6 m.kr. viðbótarheimild til þess að ganga frá eftirhreytum þessara uppgjöra.

05 Sjávarútvegsráðuneyti

101    Sjávarútvegsráðuneyti, aðalskrifstofa. Í frumvarpi til fjáraukalaga 1995 er gerð tillaga um 4,7 m.kr. viðbótarframlag til ráðuneytisins, einkum vegna ófyrirséðra útgjalda sem hlutust af samningaviðræðum um fiskveiðar við önnur ríki. Í kjölfar endurmats á þeim kostnaði er leitað eftir viðbótarheimild að fjárhæð 2,5 m.kr.

06 Dóms- og kirkjumálaráðuneyti

290    Dómsmál, ýmis kostnaður. Gerð er tillaga um 1,7 m.kr. heimild til að kosta lögfræðiþjónustu neyðarmóttöku vegna nauðgana.

07 Félagsmálaráðuneyti

704    Málefni fatlaðra, Vestfjörðum. Í byrjun þessa árs gekk óveður yfir Vestfirði sem olli verulegri röskun á starfsemi vistheimilisins Bræðratungu vegna snjóflóðahættu á Ísafirði. Farið er fram á 0,6 m.kr. viðbótarframlag til að mæta þessum ófyrirséðu útgjöldum.

711    Styrktarfélag vangefinna. Leitað er eftir 9,5 m.kr. viðbótarheimild til að jafna uppsafnaðan rekstrarhalla félagsins frá síðustu árum þar sem verkefni félagsins hafa verið umfangsmeiri en gert hefur verið ráð fyrir í fjárveitingum. Tillagan miðast við að gerður verði samningur um kaup ríkisins á þjónustu frá félaginu til þess að tryggja að starfsemin rúmist framvegis innan ramma fjárlaganna.

722    Sólheimar, Grímsnesi. Félagsmálaráðuneytið hefur látið gera mat á þjónustuþörf fatlaðra á Sólheimum og í framhaldi af því hefur verið unnið að gerð þjónustusamnings um starfsemina. Fjárþörf vistheimilisins hefur verið endurmetin á þeim grundvelli. Afla þarf aukinnar fjárheimildar sem nemur 18,7 m.kr. til að mæta hækkun rekstrargrunns og til að bæta áhrif kjarasamninga sem gerðir hafa verið á árinu 1995. Tillagan miðast við að viðbótarframlagið verði greitt þegar félagsmálaráðuneytið og stjórn Sólheima hafa komist að samkomulagi um þjónustusamning um starfsemina.

08 Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti

370    Sjúkrahús með fjölþætta starfsemi. Leitað er eftir 75 m.kr. viðbótarframlagi til að mæta rekstrarvanda nokkurra sjúkrahúsa utan Reykjavíkur. Þar er einkum um að ræða Sjúkrahús Suðurnesja, St. Jósefsspítala, Hafnarfirði, Sjúkrahús Akraness og St. Fransiskusspítala, Stykkishólmi. Framlagið miðast við tillögur heilbrigðisráðuneytisins. Gert er ráð fyrir að fjárveitingunni verði skipt þegar gengið hefur verið frá samkomulagi við stjórnir sjúkrahúsanna um fjárframlög og starfsumfang og verði henni úthlutað eftir því sem aðhaldsaðgerðir koma til framkvæmda.

371    Ríkisspítalar. Forsvarsmenn Ríkisspítala gerðu samning við heilbrigðisráðherra og fjármálaráðherra um lausn á fjárhagsvanda spítalanna í desember á síðasta ári. Í framhaldi af því var veitt 296 m.kr. framlag til spítalanna í fjáraukalögum ársins 1994 auk 84 m.kr. vegna kjarasamninga heilbrigðisstétta. Einnig var fjárlagagrunnur ársins 1995 hækkaður um 195 m.kr. Samkvæmt samkomulaginu var Ríkisspítölum ætlað að ná jafnvægi í rekstrinum með því að spara á móti hallanum sem þá stóð eftir frá árinu 1994, en hann var metinn á 70 m.kr., og síðan 160 m.kr. til viðbótar á árinu 1995. Í þessu frumvarpi er 90 m.kr. viðbótarheimild til þess að unnt verði að draga úr lokun deilda vegna sparnaðaraðgerða. Þessar áætlanir hafa ekki gengið eftir en rekstrarhallinn árið 1994 varð um 130 m.kr. og stefnir í að uppsafnaður halli spítalanna verði um 400 m.kr. í árslok 1995. Í samræmi við nýtt samkomulag milli heilbrigðisráðherra og fjármálaráðherra varðandi fjárhagsstöðu spítalanna er gerð tillaga um að hækka viðbótarframlag ársins 1995 í 242 m.kr., eða um 150 m.kr. frá því sem gert var ráð fyrir þegar frumvarpið var lagt fram.

375    Sjúkrahús Reykjavíkur. Í samningi um sameiningu Borgarspítala og St. Jósefsspítala, Landakoti, var kveðið á um að gert yrði samkomulag um framlag til sjúkrahússins vegna uppbótargreiðslna á lífeyri starfsmanna þar sem ekki hafði verið tekið tillit til þeirra í framlögum samkvæmt fjárlögum. Fjármálaráðuneyti og Reykjavíkurborg hafa nú komist að samkomulagi um málið miðað við uppgjör á uppsöfnuðum greiðslum fyrri ára. Í framhaldi af því er gerð tillaga um að fjárheimild sjúkrahússins verði aukin um 83 m.kr.

381    Sjúkrahús og læknisbústaðir. Fyrirhugað er að hækka framlag liðarins um 49 m.kr. í fjárlögum ársins 1996 til þess að unnt verði að standa við þá verksamninga sem eru í gildi og ganga frá skuldum vegna verka sem er lokið. Engin ný verkefni koma til framkvæmda. Gert er ráð fyrir að þar af verði 30 m.kr. fjármagnaðar með lækkun fjárveitingar í ár sem síðan verði endurráðstafað á næsta ári. Miðað er við að 10 m.kr. verði teknar af fjárframlögum ársins 1995 til hverrar eftirtalinna framkvæmda: Heilsugæslustöðva í Reykjavík, Sjúkrahúss Suðurnesja og Hjúkrunarheimilis Fáskrúðsfirði. Á móti kemur 1,5 m.kr. viðbótarheimild til Sjúkrahúss Austur-Húnvetninga, Blönduósi, en síðan verði gerð breyting á verksamningi til að tryggja fjármögnunina þar á næsta ári.

521    Heilsugæslustöðin Akranesi. Settur hefur verið tilsjónarmaður til að vinna að úrlausn á uppsöfnuðum rekstrarhalla stöðvarinnar. Í framhaldi af því er gerð tillaga um 8 m.kr. viðbótarframlag til stöðvarinnar. Tillagan miðast við að gengið verði frá samkomulagi við stjórn heilsugæslustöðvarinnar um aðgerðir til þess að koma á jafnvægi í rekstrinum til frambúðar.

553    Heilsugæslustöðin Akureyri. Farið er fram á 4,4 m.kr. aukafjárveitingu til stöðvarinnar. Í sértekjuáætlun stöðvarinnar í fjárlögum er gert ráð fyrir að Tryggingastofnun ríkisins endurgreiði henni kostnað við slysastofugjöld fyrir verk sem unnin eru á aðgerða- og skiptistofu. Það fyrirkomulag hefur nú verið aflagt. Framlagið er ætlað til að mæta tekjutapinu.

581    Heilsugæslustöð Suðurnesja. Verulegur halli hefur myndast á rekstri stöðvarinnar undanfarin ár. Settur hefur verið tilsjónarmaður til að vinna að lausn á fjárhagsvandanum og í framhaldi af því er gerð tillaga um 35 m.kr. viðbótarframlag til stöðvarinnar. Tillagan miðast við að gengið verði frá samkomulagi við stjórn heilsugæslustöðvarinnar um aðgerðir til þess að tryggja að starfsumfangið verði framvegis í samræmi við heimildir fjárlaga.

09 Fjármálaráðuneyti

971    Ríkisábyrgðir og tjónabætur. Í óveðrinu sem gekk yfir landið undir lok október sl. varð mikið tjón á staurum fyrir rafmagnslínur hjá Rafmagnsveitum ríkisins og Orkubúi Vestfjarða, auk þess sem fyrirtækin þurftu að keyra dísilstöðvar með talsverðum tilkostnaði til þess að tryggja orkuflutning um Vestfirði. Lagt er til að veitt verði 80 m.kr. viðbótarframlag til greiðslu tjónabóta til fyrirtækjanna sem skiptist þannig að 50 m.kr. renni til Rafmagnsveitna ríkisins og 30 m.kr. til Orkubús Vestfjarða. Fyrirtækin mæti tjóninu að öðru leyti með lántökum eða af rekstrarfé. Tillagan er gerð í ljósi samkomulags milli fjármálaráðherra og iðnaðarráðherra um að ekki muni koma til slíkrar fyrirgreiðslu framvegis. Gert er ráð fyrir að orkudreifingarfyrirtækin geri sjálf fjárhagsráðstafanir til þess að mæta slíkum áföllum með því að leggja fé til hliðar í tryggingasjóði.

999    Ýmislegt. Lagt er til að liðurinn hækki alls um 50 m.kr. af tveimur tilefnum. Í frumvarpinu er gerð tillaga um 25 m.kr. framlag til björgunaraðgerða og annarrar aðstoðar við íbúa Flateyrar í kjölfar snjóflóðsins sem féll þar í októberlok. Leitað er eftir 10 m.kr. viðbótarheimild, m.a. til kaupa á bráðabirgðahúsnæði fyrir íbúa sem misstu hús sín í snjóflóðinu. Í öðru lagi hefur gerðardómur nú verið kveðinn upp í máli jarðeigenda í Einarsnesi í Mýrasýslu gegn landbúnaðarráðherra fyrir hönd íslenska ríkisins út af netalögnum við ósa Hvítár í Borgarfirði. Niðurstaða málsins er að ríkissjóði ber að greiða um 40 m.kr. í bætur sem reiknaðar skulu með sömu forsendum og aðferðum og gilda fyrir aðrar jarðir við ósa Hvítár. Gerðarsamningurinn er með fyrirvara um samþykki Alþingis fyrir fjárveitingu til að greiða bæturnar sem gerðardómurinn kann að úrskurða. Gerð er tillaga um viðbótarframlag til þess að ganga frá uppgjörinu.

10 Samgönguráðuneyti

330    Vita- og hafnamálastofnun. Gerð er tillaga um 4 m.kr. viðbótarheimild sem renni til endurbóta við Seyðisfjarðarhöfn fyrir móttöku ferðamanna með ferjunni Norrænu.

11 Iðnaðarráðuneyti

399    Ýmis orkumál. Gerð er tillaga um 5 m.kr. viðbótarframlag sem renni til að aðstoða litlar hitaveitur sem átt hafa í rekstrarerfiðleikum, einkum til greiðslu afborgana af lánum. Gert er ráð fyrir að iðnaðarráðherra undirbúi samninga við viðkomandi hitaveitur með hliðsjón af skýrslu Ríkisendurskoðunar um fjárhagsstöðu þeirra og að fjárlaganefnd taki málið síðan til umfjöllunar þegar þeir samningar liggja fyrir.

Alþingi, 20. des. 1995.


Jón Kristjánsson,

Sturla Böðvarsson.

Árni Johnsen.

form., frsm.


Árni M. Mathiesen.

Ísólfur Gylfi Pálmason.

Hjálmar Jónsson.


Arnbjörg Sveinsdóttir.