Ferill 361. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1995–96. – 1065 ár frá stofnun Alþingis.
120. löggjafarþing. – 361 . mál.


900. Breytingartillaga



við frv. til upplýsingalaga.

Frá allsherjarnefnd.



    Við 2. mgr. 8. gr. bætist þrír nýir málsliðir er orðist svo: Þetta gildir þó ekki um sjúkraskrár og skýrslur sálfræðinga eða félagsráðgjafa. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál er þó heimilt að veita aðgang að slíkum skýrslum og sjúkraskrám til rannsókna eftir að þær hafa verið afhentar skjalasafni. Nefndin bindur slíkt leyfi þeim skilyrðum sem hún metur nauðsynleg hverju sinni.