Ferill 371. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1995–96. – 1065 ár frá stofnun Alþingis.
120. löggjafarþing. – 371 . mál.


926. Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. um sálfræðinga, nr. 40/1976, sbr. lög nr. 68/1988.

Frá allsherjarnefnd.



    Nefndin hefur fjallað um frumvarpið og farið yfir umsagnir sem bárust frá Sálfræðingafélagi Íslands og Tryggingastofnun ríkisins. Nefndin leggur áherslu á að með þeirri breytingu, sem frumvarpið mælir fyrir um, sé engin afstaða tekin til þess hvort Tryggingastofnun ríkisins skuli semja við sálfræðinga um sálfræðiþjónustu til sjúkratryggðra eða ekki.
    Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt með svofelldri

BREYTINGU:



    Við bætist ný grein er orðist svo:
    Lög þessi öðlast þegar gildi.

    Jóhanna Sigurðardóttir sat fund nefndarinnar sem áheyrnarfulltrúi og er samþykk áliti þessu.

Alþingi, 7. maí 1996.



Sólveig Pétursdóttir,

Valgerður Sverrisdóttir.

Sighvatur Björgvinsson.


form., frsm.



Hjálmar Jónsson.

Guðný Guðbjörnsdóttir.

Ögmundur Jónasson.



Jón Kristjánsson.

Kristján Pálsson.

Árni R. Árnason.