Ferill 389. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1995–96. – 1065 ár frá stofnun Alþingis.
120. löggjafarþing. –
389
. mál.
1051. Breytingartillögur
við frv. til l. um breyt. á ýmsum lögum vegna sameiningar Búnaðarfélags Íslands og Stéttarsambands bænda í Bændasamtök Íslands.
Frá landbúnaðarnefnd.
Við 3. gr. Greinin falli brott.
Við 9. gr.
A-liður orðist svo: 1. mgr. 3. gr. laganna orðast svo:
Landbúnaðarráðherra fer með yfirstjórn landgræðslumála og skipar hann landgræðslustjóra.
B-liður orðist svo: Í stað orðanna „Búnaðarfélags Íslands“ í 2. tölul. 1. mgr. 7. gr. og 1. mgr. 20. gr. laganna kemur: Bændasamtaka Íslands.
C-liður falli brott.
Við 10. gr. 1. efnismálsl. b-liðar orðist svo: Bændasamtök Íslands fjóra menn, þar af tvo landsráðunauta.
Við 11. gr. Í stað orðanna „Rannsóknarráðs Íslands“ í 2. málsl. efnismálsgreinar a-liðar komi: ráðherra byggðamála.
Við 17. gr. Greinin orðist svo:
Í stað orðanna „Búnaðarfélags Íslands“ í 4. mgr. 11. gr., 2. mgr. 17. gr. og 3. mgr. 24. gr. laganna kemur: Bændasamtaka Íslands.
Í stað orðanna „Byggingastofnunar landbúnaðarins“ í 2. mgr. 17. gr. laganna kemur: Stofnlánadeildar landbúnaðarins.
Við 34. gr.
Í stað orðanna „II. kafli“ í c-lið komi: III. kafli.
Við bætist nýr stafliður, svohljóðandi: Lög nr. 77/1936, um viðauka við og breyting á lögum nr. 43 19. maí 1930, um greiðslu kostnaðar af Skeiðaáveitunni o.fl.