Ferill 500. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1995–96. – 1065 ár frá stofnun Alþingis.
120. löggjafarþing. – 500 . mál.


1201. Framhaldsnefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. nr. 29/1963, um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins, ásamt síðari breytingum.

Frá efnahags- og viðskiptanefnd.



    Nefndin tók málið til umræðu að nýju þar sem ábendingar bárust um að frumvarpið tæki ekki til annarra starfsmanna grunnskóla en kennara og skólastjórnenda og skapaði það nokkurt ósamræmi. Nefndin leggur því til breytingar sem miða að því að sömu reglur gildi fyrir kennara og skólastjórnendur og aðra starfsmenn skóla. Þannig er lagt til að aðrir starfsmenn grunnskóla og fræðsluskrifstofa, sem ráðnir eru af ríkinu og eiga aðild að Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins er flutningur grunnskóla frá ríki til sveitarfélaga á sér stað, eigi áfram aðild að sjóðnum séu þeir ráðnir til áframhaldandi starfa hjá grunnskóla eða skólaskrifstofum sveitarfélaga.
    Mælir nefndin með að frumvarpið verði samþykkt með breytingu sem gerð er tillaga um á sérstöku þingskjali.
    Kristín Ástgeirsdóttir sat fundi nefndarinnar sem áheyrnarfulltrúi og er samþykk áliti þessu.

Alþingi, 4. júní 1996.



Sólveig Pétursdóttir,

Jón Kristjánsson.

Einar Oddur Kristjánsson.


frsm.



Svavar Gestsson.

Pétur H. Blöndal.

Jóhanna Sigurðardóttir.



Árni R. Árnason.

Ísólfur Gylfi Pálmason.

Sighvatur Björgvinsson.