Ferill 500. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1995–96. – 1065 ár frá stofnun Alþingis.
120. löggjafarþing. – 500 . mál.


1202. Breytingartillaga



við frv. til l. um breyt. á l. nr. 29/1963, um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins, ásamt síðari breytingum.

Frá efnahags- og viðskiptanefnd.



    Við 1. gr. bætist nýr málsliður er orðist svo: Sama gildir um aðra starfsmenn grunnskóla og fræðsluskrifstofa sem ráðnir voru af ríkinu og áttu aðild að lífeyrissjóðnum 31. júlí 1996 og ráðnir eru til áframhaldandi starfs við grunnskóla sveitarfélaga og skólaskrifstofur þeirra.