Valgerður Sverrisdóttir (andsvar):
Hæstv. forseti. Ég tel að hv. 4. þm. Norðurl. e. hafi talað nokkuð gegn huga sínum í ræðu sinni hér og gegn betri vitund. Vegna þess að hann veit mætavel og viðurkenndi að það þarf að setja löggjöf á þessu sviði. Og ég lýsi sérstakri ánægju með að þetta frv. er fram komið í nokkuð breyttum búningi.
Hv. þm. sagði að það væri bæði leyft og bannað. Aðalatriðið er að það er tvennt sem er bannað. Það er óheimilt að veðsetja aflahlutdeild fiskiskips og það er líka óheimilt að skilja aflahlutdeild frá skipi nema með heimild veðhafa vegna þess að það skiptir máli hvað snertir verðmæti skips hvort það hefur heimild til að sækja sjó. Er einhver sem finnst það góðir viðskiptahættir að eigendur skipa geti selt aflahlutdeild frá skipi án vitundar veðhafa og að bændur selji greiðslumark af bújörð sinni án vitundar veðhafa? Er einhver sem mælir með því að það sé gert? Ég held að svo sé ekki.