Samningsveð

Fimmtudaginn 30. janúar 1997, kl. 11:36:02 (2879)

1997-01-30 11:36:02# 121. lþ. 59.2 fundur 234. mál: #A samningsveð# frv., JóhS (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 59. fundur

[11:36]

Jóhanna Sigurðardóttir (andsvar):

Herra forseti. Ég tel að ekki sé hægt í stuttu andsvari að fara út í það hvernig braskað er með kvótann en hæstv. dómsmrh. og hæstv. sjútvrh. ættu að þekkja hvernig það er gert. Það sem ég er hér að ræða um er ákvæðið eins og það liggur fyrir, að það veikir að mínu viti ákvæði 1. gr. þegar verið er að heimila aðilum sem fá úthlutað kvóta að þinglýsa þeirri eign sinni. Að þeir fari með hann eins og hverja aðra þinglýsta eign sína og það er það sem við stöndum frammi fyrir varðandi þetta frv.