Guðný Guðbjörnsdóttir (andsvar):
Virðulegi forseti. Eins og fram hefur komið er ég í meginatriðum sammála málflutningi hv. þm. Ágústs Einarssonar í þessu máli. En vegna orða hans um LÍÚ, að þau samtök sæki þetta mál ekki fast vegna þess að þeim finnist jafnvel óþægilegt og gegn þeirra hagsmunum að fá mikla umræðu um hið umdeilda kvótakerfi nú, þá vil ég bara benda á að Kristján Ragnarsson framkvæmdastjóri þeirra situr í bankaráði Íslandsbanka og í stjórn Fiskveiðasjóðs og getur því hæglega komið þrýstingi þar á þetta mál. Og um leið er hann auðvitað að styrkja umbjóðendur sína hjá LÍÚ því hann er að festa þetta kerfi í sessi.