Evrópska myntbandalagið

Mánudaginn 03. febrúar 1997, kl. 15:08:17 (2982)

1997-02-03 15:08:17# 121. lþ. 60.2 fundur 168#B evrópska myntbandalagið# (óundirbúin fsp.), KÁ
[prenta uppsett í dálka] 60. fundur

[15:08]

Kristín Ástgeirsdóttir:

Hæstv. forseti. Ég þakka hæstv. forsrh. fyrir svörin. Þau voru nokkuð skýr og hans afstaða í málinu er skýr. En það sem ég vil fyrst og fremst leggja áherslu á er að mér finnst mjög brýnt að við fylgjumst með þessu máli og áttum okkur á því hvað það þýðir fyrir íslenskt efnahagslíf. Ég vil lýsa því hér yfir að ég er sammála síðustu orðum hæstv. forsrh., þ.e. að ég held við eigum ekki erindi inn í þetta myntbandalag.