Ákvörðun um álbræðslu á Grundartanga

Mánudaginn 03. febrúar 1997, kl. 15:24:43 (2994)

1997-02-03 15:24:43# 121. lþ. 60.2 fundur 170#B ákvörðun um álbræðslu á Grundartanga# (óundirbúin fsp.), iðnrh.
[prenta uppsett í dálka] 60. fundur

[15:24]

Iðnaðarráðherra (Finnur Ingólfsson):

Herra forseti. Það er alveg ljóst að farið verður eftir lögum og reglum og það eru lögin sem gilda í þessu, hv. þm. Málið verður tekið og skoðað ofan í kjölinn og farið eftir lagalegum farvegi. Það eru hins vegar rétt kjörin stjórnvöld á hverju svæði fyrir sig sem eru sveitarstjórnirnar sem hljóta að fara með það vald sem um er að ræða en ekki þrýstihópar sem geta orðið til víða í samfélaginu.