Utanríkisráðherra (Halldór Ásgrímsson) (andsvar):
Herra forseti. Í þessum samningum á Austurlandi er verið að stytta vinnutíma sem var óhóflega langur. Þeir ganga fyrst og fremst út á það. Jafnframt ganga þeir út á það að fólk missir ekki kaupmátt sinn vegna þessa en verður þó fyrir launalækkun. Að hvaða leyti þessir samningar eru fyrirmynd annarra samninga (Gripið fram í.) já, launalækkun á ársgrundvelli miðað við það vaktafyrirkomulag sem verður ofan á. (Gripið fram í.) Það er rétt að auðvitað er miðað við vinnutíma. Eru ekki allir þingmenn einmitt að tala um það, þeir sem hafa vakið máls á þessu, að það þurfi að stytta vinnutímann? En eigum við ekki að láta aðila vinnumarkaðarins um það. Mér heyrist vera hálfgerð vonbrigði hjá hv. stjórnarandstæðingum yfir því að þarna hafi náðst samningar. Getur það verið? Getur verið að það valdi miklum vonbrigðum hjá hv. stjórnarandstæðingum? (Gripið fram í: Af og frá.) Það er gott að heyra það. Mér heyrðist tónninn þannig að þetta væri hið versta mál.