Undirbúningur kjarasamninga og áhrif nýrra vinnumarkaðslaga

Mánudaginn 03. febrúar 1997, kl. 17:02:38 (3022)

1997-02-03 17:02:38# 121. lþ. 60.95 fundur 166#B undirbúningur kjarasamninga og áhrif nýrra vinnumarkaðslaga# (umræður utan dagskrár), félmrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 60. fundur

[17:02]

Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson) (andsvar):

Herra forseti. Ég er nú hræddur um að hér sé ekki um fullkomlega hlutlausar eða réttar upplýsingar að ræða. Ég vænti þess að á næstu vikum komist samningar á skrið og áður en langt um líður takist samningar og þá skulum við meta hvernig þessi lög hafa virkað. Ég er sammála því að betra hefði verið að þetta hefði gengið hraðar fyrir sig en ekki er öll nótt úti enn.