Frsm. 2. minni hluta iðnn. (Svavar Gestsson) (andsvar):
Virðulegi forseti. Ég þakka fyrir þessar fróðlegu upplýsingar og sérstaklega þessa útreikninga sem fram komu hjá hv. þm. Pétri Blöndal. Og ég verð að segja það að ég tók eftir því í iðnn. að hv. þm. Pétur Blöndal lagði mjög margt gott og skynsamlegt til mála og spurði margra góðra spurninga. Þeim mun meira undrandi varð ég auðvitað á því að hann skyldi að lokum fallast á málið fyrirvaralaust eins og hann gerir. En ég vil þakka hv. þm. Einari Oddi Kristjánssyni fyrir þessar upplýsingar. Ég vék að því áðan að þá var annar þingmaður Vestf. í salnum, hv. þm. Sighvatur Björgvinsson, og ég bíð spenntur eftir því að heyra hvort hann er sammála hv. þm. Einari Oddi Kristjánssyni í þessu máli. Ef svo er þá gæti margt farið að breytast. Og ég held að það sé nauðsynlegt að hafa í huga þau orð sem hv. þm. Einar Oddur Kristjánsson notaði --- málið er misskilningur, það er óþarfi. Ég held að við eigum bara að fresta umræðunni núna og taka okkur tíma í að skoða þetta mál aðeins betur. Málið er bæði misskilningur og óþarfi.