Lánasjóður íslenskra námsmanna

Miðvikudaginn 05. febrúar 1997, kl. 14:01:34 (3112)

1997-02-05 14:01:34# 121. lþ. 62.2 fundur 270. mál: #A Lánasjóður íslenskra námsmanna# fsp. (til munnl.) frá menntmrh., Forseti StB
[prenta uppsett í dálka] 62. fundur

[14:01]

Forseti (Sturla Böðvarsson):

Fleiri eru ekki á mælendaskrá og er fyrirspurninni svarað og umræðunni er lokið. En vegna athugasemda hv. 4. þm. Norðurl. e. vill forseti vekja athygli á því að hér er um fyrirspurnir að ræða og hið æskilega er auðvitað að fyrirspyrjendur og þeir sem vilja gera stuttar athugasemdir við svör fái tækifæri til þess að koma því á framfæri þannig að ráðherra geti svarað og brugðist við.