Guðni Ágústsson:
Hæstv. forseti. Það er gott og hollt hverju fyrirtæki að marka stefnu og framtíðarsýn. Hins vegar finnst mér að stjórn ÁTVR hafi gjörsamlega misskilið hlutverk sitt. Hún hagar sér eins og hún sé ekki ábyrg stjórn sem þekkir lög og heilbrigðisstefnu landsins, hagar sér eins og hún sé skemmtinefnd á gleðibar. Ég ætla ekki að hafna öllu sem stjórnin setur fram. Nýrri öld fylgja alltaf breytingar. Stjórnin vill losna við tóbakið af því að tóbakið er hættulegt. Tóbakið er í heildsölu hjá ÁTVR vegna þess að það er mesta heilbrigðisvandamál samtímans. Bann ríkir í sölu- og auglýsingastarfsemi á tóbaki. Nýir aðilar eiga ekki greiðan aðgang inn á markaðinn í dag. Stjórnin boðar slagsmál og kaos í þessu efni. Framsfl. hafnar þessari hugmynd. Stjórnin boðar lækkað verð á bjór og léttvínum en ætlar ekki að hækka verð á sterkum drykkjum. Skýringin er einföld. Það á að selja meira áfengi.
Ferðamenn kvarta undan háu verði en álagning vínveitingahúsa er frjáls, álagning allt upp í 300%. Lækkun í ÁTVR þarf ekki að skila sér í lækkuðu verði til neytenda. Svo ætlar stjórnin að gæla við kúnnann með smökkun og faglegri ráðgjöf svona eins og verið sé að selja jógúrt eða ís í Hagkaup, Bónus eða KÁ á föstudögum. Stjórnin boðar endalok ÁTVR. Það er ekki á dagskrá af hálfu Framsfl.
Ef hæstv. fjmrh. styður þessa stefnu keyrir hann af óbilgirni gegn stefnu ríkisstjórnarinnar í áfengis- og tóbaksmálum sem kynnt var 3. desember sl. Hæstv. fjmrh. boðar mismunandi verð á þessum efnum í landinu. Ég er andstæðingur þeirrar stefnu.
Hæstv. forseti. Hér verður engin kaosstefna keyrð í gegnum þingið. Framsfl. mun koma að þessu máli stefnufastur og öruggur og ég trúi að hér náist farsæl lausn sem sátt verður um.