Svanfríður Jónasdóttir:
Herra forseti. Tilgangur áfengislaganna íslensku er að vinna gegn misnotkun á áfengi og við getum velt því fyrir okkur og það er þarft að við veltum því fyrir okkur, hvort núverandi löggjöf og framkvæmd hennar stuðli að þessu markmiði og þá jafnframt hvort sú stefna ÁTVR sem viðurkennd er, að afla fjár í ríkissjóð með sölu áfengis með sem minnstum kostnaði, samræmist endilega þeirri áfengisstefnu. Það er alltaf dálítið mikill tvískinnungur í allri þessari umræðu.
Menn tala hér um að hættulegt sé að einkaaðilar fái heimild til að græða á áfengissölu. En hvernig er með vínveitingahúsin út um allt land? Hverjir reka þau? Það eru einkaaðilar og það er ekkert óskaplega mikill vandi að fá slíkt leyfi. Í ýmsum smáplássum, alla ströndina, eru tveir og þrír barir sem menn geta valið um. Á stöðum sem nokkur hundruð manns búa á geta menn valið um allt að þrjá bari til að kaupa sér vín. Þar nægir að sveitarstjórnin gefi umsögn og leyfið fæst. Hins vegar, ef það á að opna áfengisverslun á sama stað, þá þarf að fara fram kosning allra kosningabærra manna. Meiri hlutinn þarf að samþykkja. En það þurfa að búa a.m.k. þúsund á staðnum til að slík kosning geti farið fram. Og þó að slík kosning hafi nú farið fram þá er ekki þar með sagt að verslunin verði opnuð, hreint ekki. Hér var áðan talað um tvö ár. En ég er ansi hrædd um að víða hafi menn þurft að bíða lengur. Og vegna þess að menn eru hér líka að tala um það hvernig þessi verslun fer fram þá er ekki einhlítt, eins og hæstv. fjmrh. gat um áðan, að sérstakar ÁTVR-búðir versli með þennan varning, heldur taka aðrar verslanir á viðkomandi stað þá sölu að sér.
Ég held það væri málinu til framdráttar að við ræddum um það eins og það liggur fyrir út frá fyrirliggjandi staðreyndum. Og, herra forseti, ný stjórn ÁTVR nægir ekki til að breyta þeirri stefnu sem er í áfengismálum, ekki einu sinni þeirri stefnu að hægt sé að opna marga (Forseti hringir.) bari á 300 manna stað en að það þurfi þúsund manns til þess að opna áfengisverslun. Það er mál sem snýr að okkur á hv. Alþingi og ef við viljum breyta þeirri stefnu þá þarf að breyta lögum.