Áfengis- og vímuvarnaráð

Mánudaginn 10. febrúar 1997, kl. 16:18:34 (3240)

1997-02-10 16:18:34# 121. lþ. 65.5 fundur 232. mál: #A áfengis- og vímuvarnaráð# frv., heilbrrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 65. fundur

[16:18]

Heilbrigðisráðherra (Ingibjörg Pálmadóttir) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. 6. þm. Reykv. fyrir þær ábendingar sem hún kom með. Það er alveg rétt sem hv. þm. segir. Það þarf víðtæka samvinnu um forvarnir almennt og það er gert ráð fyrir því í þessu frv. Hv. þm. á sæti í heilbr.- og trn. og hún mun án efa koma þar inn með góðar ábendingar. Ég tel mjög mikilvægt að við reynum að hraða þessu máli eins og mögulegt er því ég tel mikilvægt að þetta ráð fari hið allra fyrst að starfa.