Landsvirkjun

Þriðjudaginn 11. febrúar 1997, kl. 13:43:00 (3274)

1997-02-11 13:43:00# 121. lþ. 66.3 fundur 175. mál: #A Landsvirkjun# (arðgreiðslur, skipun stjórnar o.fl.) frv., RG (um atkvæðagreiðslu)
[prenta uppsett í dálka] 66. fundur

[13:43]

Rannveig Guðmundsdóttir (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Vegna þessarar umræðu vil ég taka fram að okkar fulltrúar í iðnn. fóru mjög vel í gegnum stöðu málsins í þingflokki jafnaðarmanna og í trúnaði fjölluðu um það samkomulag sem gert hefur verið. Ég veit ekki hvað aðrir fulltrúar í iðnn. hafa gert en þingflokki jafnaðarmanna er mjög vel kunnugt um innihald samkomulagsins.