Landsvirkjun

Þriðjudaginn 11. febrúar 1997, kl. 13:46:41 (3277)

1997-02-11 13:46:41# 121. lþ. 66.3 fundur 175. mál: #A Landsvirkjun# (arðgreiðslur, skipun stjórnar o.fl.) frv., GÁS (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 66. fundur

[13:46]

Guðmundur Árni Stefánsson:

Virðulegi forseti. Enda þótt fyrir liggi, þótt ekki megi um það tala, að í nýrri yfirlýsingu eignaraðila horfi mál betur en fyrr, þá finnst mér engu að síður að við þetta mál megi ekki skilja eins og hér er. Arðgreiðslumarkmið versus verðlagspólitík er reiknuð inneign eignaraðila og fleiri þættir eru með þeim hætti að það ber brýna nauðsyn til að skoða þessi mál miklum mun betur. Því segi ég já.