Landsvirkjun

Þriðjudaginn 11. febrúar 1997, kl. 18:53:05 (3341)

1997-02-11 18:53:05# 121. lþ. 67.1 fundur 175. mál: #A Landsvirkjun# (arðgreiðslur, skipun stjórnar o.fl.) frv., GGuðbj (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 67. fundur

[18:53]

Guðný Guðbjörnsdóttir (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. iðnrh. fyrir þessi svör sem ég tel að séu alveg í samræmi við skilning okkar í 1. minni hluta. Ég held að það hafi verið mjög gott að fá skjalfest hér að þetta er einnig skilningur ríkisstjórnarinnar.