Beiðni um skýrslur

Miðvikudaginn 12. febrúar 1997, kl. 13:35:10 (3384)

1997-02-12 13:35:10# 121. lþ. 68.93 fundur 185#B beiðni um skýrslur# (aths. um störf þingsins), Forseti StB
[prenta uppsett í dálka] 68. fundur

[13:35]

Forseti (Sturla Böðvarsson):

Forseti hefur heyrt athugasemdir hv. þm. Forseti hefur upplýsingar um það, eins og fram kom hjá hv. þm., að einhverjar skýrslnanna eru u.þ.b. að verða tilbúnar þannig að þær munu verða lagðar fram fljótlega. En forseti mun gera ráðstafanir til þess að þessari vinnu verði hraðað. Forseta er jafnframt ljóst hver ákvæði þingskapa eru um þetta. En upplýsingar liggja fyrir um það að ófyrirséð atvik hafi orðið þess valdandi að meiri töf hefur orðið á en eðlilegt getur talist.