Landsvirkjun

Miðvikudaginn 12. febrúar 1997, kl. 14:48:31 (3414)

1997-02-12 14:48:31# 121. lþ. 69.1 fundur 175. mál: #A Landsvirkjun# (arðgreiðslur, skipun stjórnar o.fl.) frv., SvG (um atkvæðagreiðslu)
[prenta uppsett í dálka] 69. fundur

[14:48]

Svavar Gestsson (um atkvæðagreiðslu):

Hæstv. forseti. Við 2. umr. voru þessar tillögur dregnar til baka til 3. umr. Ég hef skilið þær aðferðir þannig að þá þurfi að endurflytja þær við 3. umr. ef þær eigi að koma til atkvæða. Þess vegna kom mér á óvart að tillögurnar kæmu nú til atkvæða. En hvað sem öðru líður þá kalla ég tillögurnar aftur og óska ekki eftir því að þær gangi til atkvæða.