Guðný Guðbjörnsdóttir (andsvar):
Virðulegi forseti. Ég vil hér í andsvari taka undir með hv. þm. Guðrúnu Helgadóttur varðandi þessa athugasemd og tel til bóta að hafa þetta ,,t.d.`` inni. En ég vil þó óska eftir og finnst það mun æskilegra að nefna fleiri málaflokka og vil þá sérstaklega nefna jafnréttismálin. Eitt meginviðfangsefni á sviði jafnréttismála á vettvangi Sameinuðu þjóðanna núna er einmitt að fylgja eftir framkvæmd gildandi laga. Það er augljóst mál að jafnréttislögin hér á landi og alþjóðasamningar sem við höfum gert gagnast ekki. Þau ákvæði sem eru í gildi um jöfn laun eða um nefndarstörf á vegum ríkisins duga ekki neitt. Og lærðar greinar hafa birst t.d. í nýjasta Úlfljóti um það hvers vegna þessi löggjöf gagnast ekki hér. Ég mundi því eindregið mælast til að þarna yrði bætt við jafnréttislögunum því þetta er allt að því áfellisdómur yfir okkar lagakerfi og því æskilegt að Ríkisendurskoðun skoði málið.