Samgönguráðherra (Halldór Blöndal) (andsvar):
Herra forseti. Það var einungis út af því hverjir skyldu greiða kostnað við vegtengingu Hvalfjarðarganga. Þannig er að Hvalfjarðargöngin spara auðvitað verulegt fé í báðum kjördæmunum, í Reykjaneskjördæmi og á Vesturlandi, með því að hvorki þarf að ráðast í stórbrúarbyggingu í Hvalfirði eins og áður hafði verið gert ráð fyrir né bæta veginn. Má raunar segja að það spari Reyknesingum meira fé heldur en Vestlendingum. Gert var ráð fyrir því að helmingurinn yrði greiddur af vegtollum, 400 millj. af þessum 800 sem til falla, og síðan var gert ráð fyrir því, í þeim hugmyndum sem ég lýsti á síðasta þingi, að af óskiptu yrðu greiddir vextir af þeim 400 millj. sem það kostar að tengja jarðgöngin en þá var gert ráð fyrir því að kjördæmin mundu síðan standa undir kostnaði við Vegagerðina. Þannig var rætt um þetta á sínum tíma.