Vegáætlun 1997 og 1998

Mánudaginn 17. febrúar 1997, kl. 17:38:30 (3561)

1997-02-17 17:38:30# 121. lþ. 71.12 fundur 309. mál: #A vegáætlun 1997-2000# þál., ÁRJ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 71. fundur

[17:38]

Ásta R. Jóhannesdóttir (andsvar):

Hæstv. forseti. Vegna orða hæstv. ráðherra um að ég sé að vitna einungis til sveitarfélagsins Reykjavíkur, þá er ég að tala um höfuðborgarsvæðið allt. Eins og hæstv. ráðherra veit er samstarf um framkvæmdir í vegamálum á höfuðborgarsvæðinu og auðvitað koma að því sveitarstjórnir fleiri sveitarfélaga heldur en Reykjavíkur, það veit hæstv. ráðherra mætavel.