Vegáætlun 1997 og 1998

Mánudaginn 17. febrúar 1997, kl. 18:12:40 (3576)

1997-02-17 18:12:40# 121. lþ. 71.12 fundur 309. mál: #A vegáætlun 1997-2000# þál., samgrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 71. fundur

[18:12]

Samgönguráðherra (Halldór Blöndal) (andsvar):

Herra forseti. Ég tek undir með hv. þm. um nauðsyn þess að breikka Breiðholtsbrautina til Hafnarfjarðar. Ég hef raunar oft sérstaklega tekið það fram þegar ég hef rætt um vegaframkvæmdir á höfuðborgarsvæðinu hversu brýnt væri að geta ráðist í þá framkvæmd. En á hinn bóginn standa sakir þannig að ekki var fyrir alvöru gert átak í vegamálum höfuðborgarsvæðisins fyrr en eftir að ég varð samgrh. þannig að ástandið er ekki betra en raun ber vitni af þeim sökum.