Siv Friðleifsdóttir (andsvar):
Herra forseti. Ég held að það sé allt of djúpt í árinni tekið að fullyrða að það sé gersamlega útilokað að uppfylla þau markmið sem sett eru í frv. gagnvart börnum án þess að til komi barnaspítali. Ég held að það sé erfitt að fullyrða það svona. Hins vegar örugglega rétt að það mundi auðvelda það.
Ég get ekki sagt það hér og nú hvort eðlilegt sé að þessar 800 millj. fylgi í þessu kostnaðarmati. Ég þekki það ekki nógu vel. Þá er líka hægt að spyrja sig: Hvar liggja mörkin? Hvað á að vera hérna inni? Eiga að vera laun heilbrigðisstarfsmanna því að það er gjörsamlega útilokað að vera með þessa þjónustu ef ekki koma til laun heilbrigðisstarfsmanna? Ég þekki bara ekki alveg nákvæmlega hvar þessi mörk liggja.