Réttindi sjúklinga

Þriðjudaginn 18. febrúar 1997, kl. 16:36:47 (3642)

1997-02-18 16:36:47# 121. lþ. 72.8 fundur 260. mál: #A réttindi sjúklinga# frv., heilbrrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 72. fundur

[16:36]

Heilbrigðisráðherra (Ingibjörg Pálmadóttir) (andsvar):

Virðulegi forseti. Mér finnst nú greinin ágætlega orðuð eins og hún er og við erum búin að velta henni mjög fyrir okkur. Mér finnst hún taka í víðum skilningi á sambærilegri heilbrigðisþjónustu og ég held að með því að þrengja greinina gæti hún fremur valdið misskilningi en hitt.