Réttindi sjúklinga

Þriðjudaginn 18. febrúar 1997, kl. 16:37:15 (3643)

1997-02-18 16:37:15# 121. lþ. 72.8 fundur 260. mál: #A réttindi sjúklinga# frv., ÁRJ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 72. fundur

[16:37]

Ásta R. Jóhannesdóttir (andsvar):

Herra forseti. Í umræðunni um þessa grein kom fram að túlka mætti greinina sem skerðingu eins og hún er orðuð. Ég held því að við þyrftum að athuga þessa grein enn betur í nefndinni þegar málið kemur þangað og skoða hvort hér þurfi að verða einhverjar breytingar á orðalagi.