Flm. (Ásta R. Jóhannesdóttir):
Herra forseti. Þetta hefur verið mjög athyglisverð umræða sem hefur sprottið hér af þessu litla frv. sem ég mælti fyrir áðan. Mig langar aðeins til að gera að umtalsefni orð hv. þm. Péturs Blöndals frá því áðan því mér nánast blöskrar hvernig maðurinn talar, því miður, herra forseti. Hann segir að margir verði öryrkjar eftir að þeir hafa tekið á sig skuldbindingar. Það er alveg rétt. En því miður eru þeir sem lenda í því í ákaflega erfiðum aðstæðum og hef ég nú oft bent á í hvaða hremmingum t.d. fjölskyldufólk sem missir heilsuna á miðjum aldri og lendir í því að verða öryrkjar er lent. Það lendir í fátæktargildru jaðarskattanna sem þessi ríkisstjórn og fleiri hafa komið á, því miður. Við það að missa atvinnuna, missa heilsuna og vera e.t.v. með maka sem vinnur fulla vinnu gerir það að verkum að viðkomandi einstaklingur á jafnvel ekki nema örlítinn rétt úr tryggingakerfinu, kannski í mesta lagi grunnlífeyri vegna þess að tekjur maka skerða hann ekki. Ég veit um mörg tilfelli sem þetta, þ.e. ungt fólk eða á miðjum aldri sem skuldar vegna húsnæðiskaupa hefur lent í þessum aðstæðum. Það er alveg sama hvað hinn vinnandi maki sem hefur starfsþrek vinnur mikið og aflar mikilla tekna þá er það allt rifið til baka aftur með jaðarsköttunum, með tekjutengingunni. Þetta fólk lifir því við geysilega erfiðar aðstæður.
Og vegna umræðna sem hafa orðið um hvort öryrkjar geti keypt sér húsnæði þá vil ég bara minna hv. þingmenn á að greiðslur úr almannatryggingakerfinu til öryrkja sem ekki á rétt á greiðslum úr lífeyrissjóðum eru um og undir 50.000 kr. á mánuði. Og ég leyfi mér að halda því fram að það sé undir framfærslumörkum. Mér blöskrar því þetta tal og ég leyfi mér að taka undir með 8. þm. Reykv., Guðrúnu Helgadóttur: Það er nú bara eins og þessir menn séu ekki í nokkrum tengslum við raunveruleikann í landinu og geri sér alls ekki grein fyrir því við hvaða aðstæður fólk býr sem þarf að draga fram lífið á tryggingabótunum einum saman. Mér finnst að menn ættu að kynna sér það áður en þeir fara að halda fram hlutum eins og þeir hafa gert hér. Maður getur bara orðið reiður við að hlusta á svona tal í þingsölum.