Samgönguráðherra (Halldór Blöndal):
Herra forseti. Nú um skeið hefur starfað vinnuhópur á vegum samgrn. og fulltrúa frá sérleyfishöfum til þess að gera úttekt á málefnum sérleyfishafa. Það er verið að athuga það sérstaklega hvort hægt sé að koma við hagræðingu með meira samstarfi milli sérleyfishafa en áður hefur verið eða fram að þessu með samruna fyrirtækja og er reynt að hraða störfum eftir því sem unnt er. En ef það er ljóst að slíkar aðgerðir dugi ekki og vilji menn eftir sem áður örugglega tryggja þær samgöngur á landi með langferðabílum sem verið hafa er ekki hægt að gera það með öðrum kosti en þeim að niður séu felld gjöld sem á greininni hvíla eða með beinum styrkjum ríkis eða sveitarfélaga. Ég held að þetta sé öldungis ljóst. Við stöndum því frammi fyrir því eftir að póstsamgöngur hafa batnað og komið er meir til móts við neytendur en verið hefur vegna krafna manna um það að pósturinn berist þegar í stað, þá er ekki hægt að mæta þeim tekjumissi sem sérleyfishafar verða fyrir með öðrum hætti en þeim að hið opinbera komi inn í staðinn, annaðhvort með beinum styrkjum eða lægri gjöldum vegna þess að það er ekki hægt að hækka fargjöld frekar en nú er.