Lúðvík Bergvinsson:
Virðulegi forseti. Þetta er dálítið skemmtilegt leikrit sem hér er verið að sýna. Undanfari þess eru deilur í fjölmiðlum milli hæstv. iðnrh. og formanns Rafiðnaðarsambandsins.
Virðulegi forseti. Ég kem hér aðallega upp til að lýsa yfir ánægju minni með þetta leikrit en ég vil beina þeirri fyrirspurn til fyrirspyrjanda af hverju hann beinir þessari fyrirspurn ekki til félmrh. sem fer með vinnumarkaðsmál. Af hverju beinir hann þessari fyrirspurn til iðnrh.? Það vakti sérstaka undrun hjá mér nema ef vera skyldi að hæstv. félmrh. hafi ekki fengið hlutverk í leikritinu.