Viðskiptaráðherra (Finnur Ingólfsson):
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. fyrir þátttöku í þessari umræðu. Mér fannst það vera til fyrirmyndar hjá hv. þm. að senda spurningarnar til mín fyrir fram því þá gefst betra tækifæri til þess að svara mun nákvæmar heldur en ef menn eru ekki undirbúnir og ég þakka hv. þm. fyrir það.
Ég vil aðeins leiðrétta það sem kom fram hér hjá einum hv. þm., að hækkunin á launum bankastjóra hafi verið langt umfram það sem almennt hafi gerst. Ég reyndi að gera grein fyrir því í fyrra svari mínu að þróunin á launakjörum bankastjóra hefði verið nákvæmlega í samræmi við þróun launavísitölunnar. Þannig að það er ekkert umfram það. En þar er um miklu hærri laun að ræða en laun á almennum markaði.
Í viðskrn. hefur verið tekin sú ákvörðun að breyta þeirri sjálfvirkni sem hefur verið á milli launakjara bankastjóra og bankaráðsmanna til þess að eyða þeirri tortryggni sem er til staðar með slíkri tengingu.
Þessi umræða þarf í sjálfu sér ekkert að koma á óvart. Þetta er eiginlega árviss atburður annaðhvort þegar skattskráin kemur út eða þá að einstakar fyrirspurnir koma fram hér á Alþingi um launakjör bankastjóranna. En einhvern veginn hefur þetta verið svo að mönnum hefur ekki tekist að breyta þessu. Ég heyri hins vegar nú í þessari umræðu að fulltrúar allra flokka tala um að þarna sé nauðsynlegt að gera breytingu á. Þá tel ég kannski að það sé betra tækifæri til þess en oft áður því staðreyndin er sú að allir þeir flokkar sem nú eiga sæti á Alþingi eiga fulltrúa í bankaráðum bankanna. Það er alveg sama hvaða stjórnmálaflokkur það er. Ég veit ekki til þess að einn einasti fulltrúi þessara bankaráða hafi gert athugasemdir við þau launakjör sem bankastjórarnir eru á. Nú heyri ég hins vegar hjá fulltrúum allra stjórnmálaflokka sem eiga sæti á þingi (Forseti hringir.) að það er vilji til að gera breytingu á og þá vænti ég þess að ég sem viðskrh. fái stuðning fulltrúa þessara flokka til að framkvæma þessa breytingu í góðri sátt við bankaráðin.