Aðgangur nemenda að tölvum og tölvutæku námsefni

Fimmtudaginn 20. febrúar 1997, kl. 12:34:27 (3783)

1997-02-20 12:34:27# 121. lþ. 75.8 fundur 325. mál: #A aðgangur nemenda að tölvum og tölvutæku námsefni# þál., GGuðbj (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 75. fundur

[12:34]

Guðný Guðbjörnsdóttir (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er talið meðal grundvallarmannréttinda að grunnmenntun barna sé veitt foreldrum að kostnaðarlausu. Það þyrfti lagabreytingu og það væri brot á almennum mannréttindasáttmálum ef það ætti að láta foreldra taka þátt í þessum kostnaði. Samkvæmt úrskurði umboðsmanns Alþingis er það ekki heimilt.