Staða drengja í grunnskólum

Fimmtudaginn 20. febrúar 1997, kl. 16:27:19 (3824)

1997-02-20 16:27:19# 121. lþ. 75.13 fundur 227. mál: #A staða drengja í grunnskólum# þál., HjálmJ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 75. fundur

[16:27]

Hjálmar Jónsson (andsvar):

Herra forseti. Það var aðeins ábending sem ég gerði hér varðandi þessar niðurstöður sem mér þóttu athyglisverðar og vildi því minnast á en hitt er annað mál að í till. til þál. sem ég lagði fram í þinginu fyrir fimm árum var þetta allt tíundað og einmitt að það eru sláandi tölur um tíðni sjálfsvíga hjá ungum karlmönnum. Hjá okkur hefur aukningin verið gífurlega mikil á undanförnum tveimur áratugum. En það er líka rétt sem hv. þm. sagði að þetta er vandi sem er mjög vaxandi í vestrænum þjóðfélögum og þarf að bregðast ákveðnar við en hingað til hefur verið gert.