Umræða um frv. um atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

Þriðjudaginn 25. febrúar 1997, kl. 14:18:03 (3902)

1997-02-25 14:18:03# 121. lþ. 77.96 fundur 209#B umræða um frv. um atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir# (um fundarstjórn), KÁ
[prenta uppsett í dálka] 77. fundur

[14:18]

Kristín Ástgeirsdóttir:

Hæstv. forseti. Vegna næstu tveggja mála sem koma á dagskrá, frv. um atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir, viljum við í félmn. leggja til að þessi mál verði rædd sameiginlega. Þau fléttast mjög mikið saman og þó að við höfum hafnað því við 1. umr. að gera slíkt, vegna þess að þá vorum við alls óundirbúin, þá teljum við rétt að fara þessa leið ef enginn andmælir því.