Pétur H. Blöndal (andsvar):
Herra forseti. Ég skrifaði undir nál. með fyrirvara vegna þess að ég er með fyrirvara við eitt atriði í brtt. (Gripið fram í: Hvaða atriði?) Það er það atriði að möguleikar séu á að flytja greiðslustaðinn yfir til verkalýðsfélagsins. Þetta er minn fyrirvari og ég er að lýsa honum hérna.
En að hv. þm. geti ekki haft ákveðna skoðun á málunum vegna þess að þeir séu bundnir af einhverjum hagsmunum, þá vil ég benda mönnum á að mjög mikilvægt er að við reynum að átta okkur á því hvar þessir hagsmunir grípa inn í störf Alþingis.