Fyrirspyrjandi (Kristján Pálsson):
Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. forsrh. fyrir mjög greinargóð og skýr svör og hv. þm. fyrir þátttökuna í umræðunni.
Það er ljóst að Seðlabankinn hefur haft þá skoðun að verðtrygging lána sé heppilegri heldur en tenging án verðtryggingar þannig að ljóst var að svör Seðlabankans yrðu á þá lund. Ég veit að hæstv. forsrh. hefur tekið mið af því. Ég hef þá skoðun og trú eigi að síður að þó svo að Seðlabankinn hafi þessa skoðun þá sé nauðsynlegt í ljósi þeirrar stöðu sem heimilin standa frammi fyrir í dag að hæstv. forsrh. eða ríkisstjórnin skoði hvernig mætti mæta þessum mikla vanda sem heimilin standa frammi fyrir.
Menn hafa bent á það í bankakerfinu m.a. að hugsanlega væri betri leið til þess að mæta þessum vanda heimilanna að tryggja húsnæðislán með launavísitölu í staðinn fyrir verðlagsvísitölu. Því hefur verið haldið fram að verðlagsvísitalan sé svo viðkvæm fyrir breytingum að stórverslanir geti jafnvel lækkað stórlega verð á grænmeti fyrir stóran gjalddaga hjá sjálfum sér og fengið þannig niður verðlagsvísitöluna.
Þetta eru fullyrðingar sem leikmenn eins og ég geta ekki metið en þó er haldið fram.
Ég held, hæstv. forseti, að það sé ýmislegt í þessu kerfi sem mætti fara betur og því skora ég á hæstv. forsrh., sem ég veit að vill gera vel fyrir launafólk og heimili í landinu, að athuga þessi mál eftir bestu getu.