Fyrirspyrjandi (Hjörleifur Guttormsson):
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. forsrh. fyrir viðbrögð hans og svör við þessari fyrirspurn. Það er góðra gjalda vert að það er sýnt að framhald verður á málinu. Það er verið að vinna að málinu, þróunarverkefni eru sett á laggirnar og verkefnastjórn. Það var nú ekki upplýst af hæstv. ráðherra hverjir leiddu eða væru í forustu fyrir því starfi. Það gæti verið fróðlegt að heyra um það hvort kona leyndist kannski í þeim hópi vegna þess sem hér var nefnt réttilega, þ.e. hversu hallar á í nefndaskipuninni. Ég tek undir það að hér er auðvitað um að ræða vinnu sem bæði er í þágu væntanlegra notenda sem og miðlara, þ.e. stjórnsýslunnar sjálfrar og ráðuneytanna. Mér er ljóst að hér er ekki um lagaskyldu að ræða en hins vegar gæti þetta auðveldað að uppfylla lagaskyldu samkvæmt lögum upplýsingar, upplýsingaskyldu stjórnvalda, því að þau eru lögskylduð til þess að sinna þar ákveðnum verkefnum. Það ætti þá auðvelda málin að það sé aðgengilegt á vefnum.
Ég spurði um fjármögnun og hún liggur ekki fyrir en það ræður auðvitað úrslitum um það hversu greitt verður unnið í þessu máli. Ég nefni að í Svíþjóð, sem dæmi um Norðurlöndin, er vinna að þessum málum komin býsna langt. Þar er gagnabankinn Rixlex svokallaði sem er mikið tölvukerfi fyrir ríki og þing og það er ekki tekið gjald lengur fyrir notkun þess. Það var gert í upphafi og þarna liggur fyrir sem sagt mikið efni og aðgengilegt hjá þeim. Þeir eru mjög framarlega í upplýsingaskyldu og eru að reyna að reka þau trippi innan Evrópusambandsins þar sem margt er nú hulið og dulið í þessum efnum.
Ég ítreka þakkir fyrir svörin og Alþingi þarf auðvitað að fylgjast með þessum málum. Ég nefni það, virðulegur forseti, í lokin að gott er til þess að vita að hv. þm. Tómas Ingi Olrich hefur lagt gjörva hönd á þessa vinnu og skilað henni hér sumpart á frumlegu íslensku máli.