Svanfríður Jónasdóttir:
Herra forseti. Þegar frv. til laga um atvinnuleysistryggingar kom til umræðu á Alþingi mætti það harðri gagnrýni minni hlutans, enda bar frv. í sér mjög neikvæða afstöðu til atvinnulausra og reyndist innihalda fjölmörg skerðingarákvæði um réttindi atvinnulausra. Nú hefur meiri hlutinn fallist á ýmsar ábendingar fulltrúa verkalýðshreyfingarinnar um gagngerar breytingar til bóta á einstökum þáttum. Þær breytingartillögur munum við styðja, enda mikil framför frá þeim neikvæðu viðhorfum og skerðingarákvæðum sem eru í upphaflegu frv. hæstv. ráðherra.
En sá bastarður sem þessi löggjöf stefnir í að verða er hins vegar fullkomlega á ábyrgð ríkisstjórnarinnar og meiri hluta hennar hér á Alþingi og mun þingflokkur jafnaðarmanna því sitja hjá við flestar efnisgreinar frv. og við málið í heild. Ég sit hjá við þessa grein, herra forseti.