Atvinnuleysistryggingar

Miðvikudaginn 26. febrúar 1997, kl. 18:16:05 (4002)

1997-02-26 18:16:05# 121. lþ. 79.2 fundur 171. mál: #A atvinnuleysistryggingar# (heildarlög) frv., SJóh (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 79. fundur

[18:16]

Sigríður Jóhannesdóttir:

Hæstv. forseti. Hér er verið að vísa til sveitar þeim sem lenda í langtímaatvinnuleysi og afneita því til frambúðar að slík staða geti komið upp við eðlilegar aðstæður. Hér er enn ein aðförin að sjálfsvirðingu atvinnulauss fólks. Ég segi nei.